Hekla Legal

Um okkur

Hekla Legal býður upp á trausta alhliða lögfræðiþjónustu og ráðgjöf byggða á þekkingu og reynslu. Hekla Legal leggur áherslu á faglega, heiðarlega og skjóta þjónustu þar sem hagsmunir viðskiptavina eru ávallt í fyrirrúmi. Meðal viðskiptavina stofunnar eru einstaklingar, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir.

Vigdís Þóra Sigfúsdóttir, lögmaður og eigandi Hekla Legal

Lögmaður og eigandi

Vigdís Þóra Sigfúsdóttir

Vigdís útskrifaðist með B.S. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2009 og úr meistaranámi með ML gráðu við sama háskóla árið 2011. Einnig starfaði Vigdís um tíma hjá Ríkissaksóknara með námi sínu og síðan sem fulltrúi á lögmannsstofunni Lagaþingi. Árið 2016 öðlaðist Vigdís réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður. Vigdís hefur yfirgripsmikla reynslu af útlendingamálum en árið 2015 var hún skipuð sem varamaður í kærunefnd útlendingamála til 5 ára eftir tilnefningu frá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Þá starfaði Vigdís hjá Reykjavíkurborg í um það bil áratug og hefur því viðamikla reynslu á stjórnsýslurétti sem og öðrum lögum og reglugerðum í opinberri stjórnsýslu. Síðast en ekki síst hefur Vigdís sérhæft sig í þekkingu þegar kemur að almannatryggingum og réttindum aldraðra.

  1. 2009B.S. Bifröst
  2. 2011ML Bifröst
  3. 2015Kærunefnd útlendingamála
  4. 2016Héraðsdómslögmaður

Bíldshöfði 16

Hafa samband

Hekla Legal ehf.

Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík

Sími 497 4020

heklalegal@heklalegal.is

Opna í Google Maps (opnast í nýjum glugga)

Viltu ræða þína stöðu?

Fyrsta skrefið er einfalt samtal. Við förum yfir málið í trúnaði og útskýrum næstu skref.